Stikilberja-Finnur
Stikilberja-Finnur (e. Adventures of Huckleberry Finn) er skáldsaga eftir bandaríska rithöfundinn Mark Twain. Bókin kom fyrst út í Bretlandi í desember árið 1884 en í Bandaríkjunum í febrúar árið 1885. Bókin er talin á meðal merkustu skáldsagna í sögu bandarískra bókmennta.
Höfundur | Mark Twain |
---|---|
Upprunalegur titill | Adventures of Huckleberry Finn |
Þýðandi | Kristmundur Bjarnason (1945) |
Land | Bandaríkin |
Tungumál | Enska |
Stefna | Píkareska skáldsagan |
Útgefandi | Chatto & Windus / Charles L. Webster And Company. |
Útgáfudagur | 10. desember 1884 (í Bretlandi) 1885 (í Bandaríkjunum) |
Síður | 362 |
ISBN | ISBN 9789935412218 |
Forveri | Sagan af Tuma litla |
Sagan er sögð í fyrstu persónu en sögumaðurinn er Stikilberja-Finnur, vinur Tuma litla sem er sögumaður bókarinnar Sagan af Tuma litla, sem er annað ritverk eftir Mark Twain. Sagan gerist skömmu fyrir þrælastríðið og annar vinur Stiklaberja-Finns í sögunni er þræll á flótta.
Stikilberja-Finnur og ævintýri hans kom út í íslenskri þýðingu Kristmundar Bjarnasonar árið 1945.