TF-SIF
Eftirlits- og björgunarflugvél í eigu Landhelgisgæslu Íslands
TF-SIF er eftirlits- og björgunarflugvél í eigu Landhelgisgæslu Íslands af gerðinni Dash-8-Q300. Vélin kom til Íslands 1. júlí 2009 á 83 ára afmæli Landhelgisgæslunnar. Hún heitir eftir gyðjunni Sif úr norrænu goðafræðinni.
TF-SIF | |
TF-SIF | |
Tegund: | Bombardier Dash-8-Q300 |
---|---|
Árgerð: | 2009 |
Hreyflar | Pratt & Whitney Canada PW123 |
Vélin tekur 12-14 farþega í venjulegri útfærslu en hægt er að breyta henni svo hún rúmi 22 farþega án mikillar fyrirhafnar. Eldsneyti flugvélarinnar endist í 4.100 km eða í 10 klukkustundir.
Árið 2023 ákvað Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra að selja vélina og hlaut hann mikla gagnrýni fyrir.[1] Fallið var frá sölunni.
Heimildir
breyta- Ný eftirlitsflugvél - TF-SIF Geymt 7 janúar 2010 í Wayback Machine. Landhelgisgæsla Íslands. Sótt 20. janúar 2010.
- TF-SIF bæklingur. Landhelgisgæsla Íslands. Sótt 20. janúar 2010.
Tilvísanir
breyta- ↑ Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Vísir, sótt 2. feb. 2023