Tölvunet
Tölvunet er hópur samtengdra tölva. Tölvunet er hægt að nota til að deila upplýsingum og gögnum á stafrænu formi. Tölvunet er hægt að flokka í flokka eftir stærð og gerð. Með gerð er bæði átt við gerð einingana sem tengir tölvurnar saman og samskiptastaðlana sem tölvurnar nota. Hér á eftir eru nokkrir flokkar tölvuneta eftir stærð:
- einstaklingsnet (e. PAN, personal area network)
- staðarnet (e. LAN, local area network)
- miðlungsnet (e. MLA, mid-level area network)
- víðnet (e. WAN, wide area network)
- heimsnet (e. MBWA, mobile broadband wireless access)
- fjölnet (e. GAN, global area network)
- sýndareinstaklingsnet (e. VPAN, virtual personal area network)
Tegundir
breytaEinstaklingsnet
breytaEinstaklingsnet eru tölvunet sem ná yfir mjög lítið svæði. Dæmi um einstaklingsnet er samtenging tveggja tölva sem eru við hlið hver annarar. Einnig er það oftast einstaklingsnet þegar skipst er á gögnum í gegnum Bluetooth.
Staðarnet
breytaStaðarnet eru tölvunet sem ná yfir lítið svæði svo sem heimili, skrifstofu eða skrifstofubyggingar. Uppbygging staðarneta er oftast á þá leið að einn netþjónn sér um uppihald netsins þó einnig séu til aðrar gerðir staðarneta eins og jafningjanet sem styðjast við samskiptastaðla á borð við IP.
Víðnet
breytaVíðnet er skilgreint sem tölvunet sem nær yfir stórt svæði. Víðnet getur samanstaðið af mörgum minni netum, staðarnetum, sem hafa samskipti sín á milli með beinum. Víðnet eru notuð til að sameina mörg önnur net þannig að hægt sé að hafa samskipti á milli þessara annars aðskildu neta, staðarneta.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Computer network“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. janúar 2009.