Stjórnmálafræði
(Endurbeint frá Stjórnmálafræðingur)
Stjórnmálafræði er grein innan félagsvísinda sem fjallar um og rannsakar stjórnmál í víðum skilningi. Þar sem stjórnmál er illskilgreinanlegt hugtak er ekki borin von að viðfangsefni stjórnmálafræðinnar séu skýrt afmörkuð.[1] Almennt má þó segja að stjórnmál snúist um ákvarðanir sem varða hópa af einstaklingum og eru bindandi. Stjórnmálafræði snýst því um að skilja betur stjórnmál, t.d. hvað vald sé, hvað sé lýðræði, félags- og efnahagslegt réttlæti og hvernig sé best að tryggja stöðugleika í samfélagi manna. Undirgreinar stjórnmálafræðinnar eru samanburðarstjórnmál, alþjóðasamskipti, opinber stjórnsýsla og stjórnspeki.
Tilvísanir
breytaTenglar
breyta- Félag stjórnmálafræðinga á Íslandi Geymt 23 september 2015 í Wayback Machine
- Stjórnmál og stjórnsýsla - íslenskt vefrit um stjórnmál
- Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands Geymt 1 ágúst 2009 í Wayback Machine
- Svör úr flokknum stjórnmálafræði á vef Vísindavefsins
- „Hvað eru stjórnmál? og Hvað er stjórnmálafræði?“. Vísindavefurinn.