Sterk víxlverkun
(Endurbeint frá Sterki kjarnakrafturinn)
Sterki kjarnakraftur er annar kjarnakraftanna, sem halda frumeindakjarna saman, þ.e. krafturinn sem verkar milli kjarneindanna í kjarnanum. Kraftinum er miðlað af límeindum og verkar aðeins mjög skamma vegalengd öfugt við þyngdar- og rafseglulkraft sem eru langdrægir.
Helstu einkenni sterka kjarnakraftsins eru:
- Hann finnst aðeins af sterkeindum.
- Við mjög lítinn aðskilnað kjarneinda er krafturinn sterk fráhrindandi sem heldur kjarneindunum aðskildum.
- Ef kjarneindir eru í meira en 1,3 fm fjarlægð frá hvor annarri deyr krafturinn út mjög hratt.
- Hann er næstum óháður hleðslu.
- Hann er háður því hvort spunar kjarneindanna eru samsíða eða andsamsíða.
Veiki kjarnakraftur er hinn kjarnakrafturinn, sem veldur betasundrun.