Stella Sigurðardóttir
Stella Sigurðardóttir (f. 30. mars 1990) er íslensk handknattleikskona sem leikur með danska handknattleiksfélaginu SönderjyskE.
Stella lék með Fram alla yngri flokka og varð snemma einn af lykilmönnum meistaraflokks. Hún var í bikarmeistaraliði Fram árin 2010 og 2011, auk þess að verða Íslandsmeistari með Framliðinu leiktíðina 2012-13. Hún var í íslenska landsliðinu sem tryggði sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins árið 2010, en gat ekki leikið þegar til kom vegna meiðsla. Hún var einnig í leikmannahópi Íslands á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu árið 2011.
Stella var valin Íþróttamaður Fram árið 2009, þegar sá titill var veittur í annað sinn. Hún hlaut titilinn að nýju árið fyrir árið 2012.