Stóra-Skógfell

(Endurbeint frá Stóra Skógfell)

Stóra-Skógfell er 189 metra hátt fell á miðjum Reykjanesskaga norður af Grindavík. Fellið er úr bólstrabergi og myndaðist í eldgosi undir jökli á fyrri hluta síðasta jökulskeiðs.[1] Fellið er skammt austan Arnarseturs og er nú umlukið nýju hrauni sem runnið hefur í eldgosahrinunni við Sundhnúkagíga sem hófst í desember 2023.

Stóra-Skógfell
Bæta við mynd
Hæð189 metri
LandÍsland
Map
Hnit63°53′51″N 22°22′26″V / 63.8975°N 22.3739°V / 63.8975; -22.3739
breyta upplýsingum

Vísanir

breyta
  1. „Arnarsetur - Stóra-Skógfell“. Ferlir.
   Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.