Sleði
Sleði er landfarartæki með sléttum botni eða fest á slétta lárétta teina sem fara áfram með að renna eftir yfirborði. Flestir sleðar eru ætlaðir til vetrarferða til að renna eftir yfirborði með lítið viðnám eins og ís og snjó. Sleðar hafa einnig verið notaðir á annars konar yfirborði svo sem leir. Heysleðar voru notaðir til að flytja hey frá votlendi yfir á þurrt land og úr þýfi yfir á slétt land. Sleðar eru notaðir bæði til að flytja fólk og varning.
Börn renndu sér áður á magasleðum eða skíðasleðum úr tré með meiðum úr málmi en núna á sleðum úr plasti (snjóþotum). Magasleðar eru lágir sleðar til að liggja á maganum á og voru úr viði með járnmeiðum, stundum með festri sætisgrind. Skíðasleðar eða sparksleðar eru með sæti að framan og löngum meiðum og getur annar spyrnt sleðanum áfram. Það tíðkaðist að setja tólg á meiðana til að sleðinn færi hraðar.
Tenglar
breyta- Mynd frá 1895-1900 af fólki á hestasleða við Vesturgötu 2 í Reykjavík
- Mynd frá 1866-1900 af tveim piltum sem draga sleða upp Bakarabrekkuna (Bankastræti)
- Mynd af sparksleða (stígasleði) með sæti.
- Gripur mánaðarins Sparksleði Geymt 31 október 2015 í Wayback Machine
- Fágætur safngripur á útkjálka Íslands