Skrauthnokki
Skrauthnokki (fræðiheiti: Bryum muehlenbeckii) er tegund mosa af hnokkmosaætt. Skrauthnokki vex á rökum stöðum við læki og tjarnir. Hann hefur fundist á tveimur stöðum á Íslandi, annars vegar á Hornströndum og hinst vegar í eða nálægt Lóni í Austur-Skaftafellssýslu.[2] Karlplöntur hafa fundist hér á landi en aldrei hafa plöntur fundist með gróhirslu.[2]
Skrauthnokki | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Skrauthnokki innan um hávaxnari gróður á steini.
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Bryum muehlenbeckii Bruch. et Schimp |
Staða stofns
breytaSkrauthnokki er metinn sem tegund í fullu fjöri (LC) á heimsválista IUCN,[1] sem er lægsta mögulega hættustig, en á Íslandi er settur í flokk tegunda sem ekki er hægt að meta í hættuflokk (DD).[3]
Myndir
breyta-
Horft ofan á rakan skrauthnokka.
-
Skrauthnokki séður frá hlið. aðeins efsti parturinn er skærgrænn.
-
Laufblað skrauthnokka sem rifið hefur verið frá stönglinum.
-
Smásjármynd af grunnfrumum í laufblaði skrauthnokkans. Grænukorn eru greinileg.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Hodgetts, N., Blockeel, T., Konstantinova, N., Papp, B., Schnyder, N., Schröck, C. & Untereiner, A. 2019. Imbribryum muehlenbeckii . The IUCN Red List of Threatened Species 2019: e.T83662840A87792807. Sótt 7. febrúar 2020.
- ↑ 2,0 2,1 Bergþór Jóhannsson 1995. Íslenskir mosar. Hnokkmosaætt. 162 s.
- ↑ Náttúrufræðistofnun Íslands (1996). Válisti 1: Plöntur. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.