Sigurskúfur
Sigurskúfur (fræðiheiti: Chamerion angustifolium (syn. Epilobium angustifolium)) er fjölær jurt af eyrarrósarætt. Hann tilheyrir dúnurtum og getur orðið allt að 70 cm á hæð. Sigurskúfur ber rauð blóm og er algengur um allt norðurhvel jarðar.
Sigurskúfur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Chamerion angustifolium L. |
Lýsing
breytaBlómin eru mörg í klasa upp eftir plöntunni. Þau eru um 2 cm í þvermál. Krónublöðin eru rauð en bikarblöðin dökkrauð. Í hverju blómi er 8 fræflar. Frævan er löng og hærð. Blöðin standa gagnstætt á stilknum. Þau eru 4 til 12 cm á lengd og 1 til 2 cm á breidd. Þau eru lensulaga, heilrennd eða með litlar tennur og hárlaus.
Sigurskúfur er áburðarfrekur og vex því gjarnan í kringum bæi - oft í þéttum breiðum. Í skóglendi og klettum vex hann villtur - blómstrar seint. Í gras- eða mólendi er hann stundum dvergvaxinn og blómstrar ekki vegna næringarskorts. Þá myndar hann 10 til 20 cm langa blaðsprota. Sigurskúfur heitir á ensku "fireweed" og vísar nafnið til þess að sigurskúfur er landnemaplanta, þegar skógur rofnar vegna skógarbruna er sigurskúfur fljótur að spretta fram og þekja skógarbotninn.
Á vorin er gott að borða rætur af plöntunni. Steikja þær í smjöri og salta.
Heimildir
breyta- Sigurskúfur (Lystigarður Akureyrar) Geymt 24 október 2020 í Wayback Machine
- Sigurskúfur (Náttúrufræðistofnun Íslands)