Seljalandsfoss
(Endurbeint frá Seljarlandsfoss)
Seljalandsfoss er 62 metra hár foss í Seljalandsá í Rangárþingi eystra. Fossinn er þekkt ljósmyndamótíf, en hann breyttist talsvert í flóði árið 1976 og kom þá skarð í bjargbrúnina þannig að fossinn breiðir ekki eins mikið úr sér eins og áður.
Seljalandsfoss | |
---|---|
Staðsetning | Rangárþing eystra, Ísland |
Hnit | 63°36′57″N 19°59′34″V / 63.61583°N 19.99278°V |
Hæð | 62 m |
Vatnsrás | Seljalandsá |
Seljalandsfoss var áður fyrr nefndur sem dæmi um brimrofsfoss. Slíkan foss mætti einnig nefna brimklifsfoss.
Myndir
breyta-
Seljalandsfoss. Hægt er að fara bakvið fossinn.
-
Seljalandsfoss, júní 2020.
Heimild
breyta- „Seljalandsfoss Eyjafjöll“. Sótt 1. desember 2005.