Selasetrið á Hvammstanga

(Endurbeint frá Selasetrið)

Selasetur Íslands á Hvammstanga (enska: The Icelandic Seal Center) er safn, upplýsingamiðstöð og rannsóknarsetur á Hvammstanga, við Miðfjörð á Norð-Vesturland. Það var formlega stofnað árið 2005 af heimamönnum með það að markmiði að standa að eflingu náttúrutengdrar ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland. 

Í Selasetrinu

Selasetrið er í samfélagseign og rekið í samfélagsþágu. Að Selasetri Íslands stendur fjöldi aðila innan og utan Húnaþings vestra, einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki í ferðaþjónustu. Selasetrið er ekki rekið í hagnaðarskyni.

Selasetrið opnaði formlega þann 26. júní 2006 með fræðslusýningu í gömlu verslunarhúsnæði Sigurðar Pálmasonar að Brekkugötu 2. Hátt í þriðja hundrað gesta komu og það var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sem opnaði formlega Selasetur Íslands. Fyrsta árið komu um 2.500 gestir.

Árið 2012 flutti fræðuslusýninginn yfir annað húsnæði við höfnina, í kjallara á Strandgötu 1 (í gamla gærukjallarann). Hönnuður sýningarinnar er hann Steinþór Sigurðsson. Skrifstofur rannsóknadeilda og framkvæmdastjóra eru núna á 2. hæð Höfðabrautar 6.

Selasetrið er fræðslumiðstöð fyrir almenning og ferðamenn um líffræði og hegðun sela við Ísland. Það er einnig öflugt rannsóknarsetur með þrjár rannsóknardeildir í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun Íslands , ferðamáladeild Háskólans á Hólum og Náttúrustofu Norðurlands vestra. Það stendur fyrir rannsóknum og fræðslu á selum og náttúrutengdri ferðaþjónustu í Húnaþingi vesta.

Selasetrið

Á hverju ári eru gerðar rannsóknir á selum á Heggstaðanesi, Vatnsnesi  og víðar um Ísland í góðri samvinnu við heimamenn og landeigendur. Það hafa verið starfsmenn og nemar Selaseturs Íslands í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Hólaskóla aflað mikilvægra líffræðilegra og atferlisupplýsinga um selina sjálfra sem og áhrif ferðaþjónustu á hegðun selanna.

Selveiðibann og það að koma íslenskum selstofnunum á alþjóðlega válista er án efa stærsta afrek Selasetursins.

Í Selasetrinu er fræðslusýning og upplýsingar um seli og lifnaðarhætti þess við Ísland. Á Selasetrinu er búið að standsetja rannsóknaraðstöðu í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun. Þar einnig er rekin minjagripaverslun og Upplýsingamiðstöð Húnaþings vestra sem er mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.

Á selaslóðum / The Seal Circle

Vorið 2021 hannaði Selasetrið nýja ferðamannaleið "Á selaslóðum" á Norðurlandi vestra og er hún111 km. löng. Á Selastóðum er hringleið, allt frá Hvammstanga um Vatnsnesið, yfir í Kolugljúfur í Víðidal og aftur á Hvammstanga. Ferðamannastaðirnir eru Hvammstangi, Hamarsrétt, Illugastaðir, Hvítserkur, Borgarvirki og Kolugljúfur.

Tengt efni

breyta

Tenglar

breyta