Vetrarblóm
(Endurbeint frá Saxifraga oppositifolia)
Vetrarblóm (fræðiheiti: Saxifraga oppositifolia) er jurt af steinbrjótsætt sem ber rauð eða rauðfjólublá blóm. Vetrarblóm vex víða á norðurslóðum og til fjalla sunnar, t.d. í norðurhluta Bretlands, Ölpunum og í Klettafjöllunum.
Vetrarblóm | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Saxifraga oppositifolia L. |
Vetrarblóm vex í klettum, á melum og rindum. Það er algengt um allt Ísland.
Greiningareinkenni
breytaSprotar vetrarblóms eru jarðlægir og oft um 5 til 20 cm á lengd. Laufblöðin eru 3-4 mm og öfugegglaga. Blómin eru 10 til 15 mm í þvermál. Þau eru rauð eða rauðfjólublá.
Undirtegundir
breytaSamlífi
breytaÁ Íslandi vex sveppurinn grasmúrgróungur (Pleospora herbarum) á dauðum vefjum ýmissa plöntutegunda,[4] meðal annars á vetrarblómi.[5]
Vetrarblóm getur verið millihýsill fyrir víðiryðsvepp (Melampsora epitea).[5]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Saxifraga oppostifolia ssp. glandulisepala“. ITIS.
- ↑ „Saxifraga oppostifolia ssp. oppostifolia“. ITIS.
- ↑ „Saxifraga oppostifolia ssp. smalliana“. ITIS.
- ↑ Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
- ↑ 5,0 5,1 Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Vetrarblóm.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Saxifraga oppositifolia.