Nútímabörn - Nútímabörn
(Endurbeint frá SG 023)
Nútímabörn er 33 snúninga LP hljómplata með hljómsveitinni Nútímabörn gefin út af SG - hljómplötum árið 1969. Hljóðritun fór fram í Ríkisútvarpinu undir stjórn Péturs Steingrímssonar. Plötuumslagið hannaði Rósa Ingólfsdóttir en ljósmyndir á umslagi tók Kristinn Benediktsson.
Nútímabörn | |
---|---|
SG - 023 | |
Flytjandi | Nútímabörn |
Gefin út | 1969 |
Stefna | Þjóðlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Pétur Steingrímsson |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- Vetranótt - Lag - texti: Ágúst Atlason
- Okkar fyrstu fundir - Lag - texti: Darin — Böðvar Guðlaugsson
- Anna litla - Lag - texti: Franskt þjóðlag — Sig. Þórarinsson
- Dauði eins er annars brauð - Lag - texti: Simon/Woodley — Þorsteinn Eggertsson
- Drykkjumaðurinn - Lag - texti: Ágúst Atlason
- Kötturinn ódrepandi - Lag - texti: Morais — Maron Vilhjálmsson
- Konan, sem kyndir ofninn minn - Lag - texti: Sverrir Helgason — Davið Stefánsson
- La la la - Lag - texti: Me de la Calva — Baldur Pálmason
- Vestast í vesturbænum - Lag - texti: Franskt þjóðlag — Sig. Þórarinsson
- Landabrugg - Lag - texti: Írskt þjóðlag — Maron Vilhjálmsson
- Hvenær vöknum við? - Lag - texti: Lennon–McCartney — Ómar Ragnarsson
- Lifandi er ég - Lag - texti: Norskt þjóðlag — Sig. Þórarinsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaSöngflokkurinn Nútímabörn kom fyrst fram snemma á árinu 1968 og vakti þá strax athygli fyrir góðan söng og skemmtilega framkomu. Síðan hefur flokkurinn sungið viða um land, en Nútímabörn eru þau Drifa Kristjánsdóttir, Ágúst Atlason, Snæbjörn Kristjánsson og Sverrir Ólafsson.
Á hljómplötu þessari, sem er þeirra fyrsta, syngja þau nokkur þeirra laga, sem þau sungu í sínum fyrsta sjónvarpsþœtti, en nú eru lögin öll með íslenzkum textum. Þá er hér að finna mörg önnur lög, sem þau æfðu saman sérstaklega með þessa plötu í huga. Flest eru lögin erlend, en með íslenzkum textum eftir ýmsa góðkunna höfunda. Aukahljóðfæri aðstoða í nokkrum laganna og útsetti Magnús Ingimarsson fyrir þau. |
||