Súrrealismi
(Endurbeint frá Súrrealisti)
Súrrealismi (úr frönsku surréalisme „óraunveruleiki“) er listahreyfing sem á uppruna sinn í Frakklandi á þriðja áratugnum. Súrrealismi leysti dadaisma af hólmi eftir fyrri heimsstyrjöldina[1] og byggist á hugmyndinni að listin væri þá of bundin hefðum. Innblástur til listaverka var fenginn frá meðal annars draumum og dulvitundinni.[2] Í súrrealískum málverkum er oft stillt saman hlutum sem virðast vera óskyldir.[1] Nokkrir helstu súrrealistarnir voru Salvador Dalí, Max Ernst og Joan Miró. Súrrealismi er þó ekki bundinn myndlist, til dæmis hefur íslenski höfundurinn Halldór Laxness verið kallaður súrrealisti.[3]
Heimildir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Vísindavefurinn: Hver er munurinn á dadaisma, súrrealisma og absúrdisma?“. Sótt 7. mars 2012.
- ↑ „Surrealisme“. Sótt 7. mars 2012.
- ↑ „Vísindavefurinn: Eru eða voru til íslenskir súrrealistar?“. Sótt 7. mars 2012.