Reflex
Reflex var hljómsveit sem starfaði árin 1980-1982 og kom fram víða á höfuðborgarsvæðinu. Hún spilaði meðal annars á tröppum Menntaskólans í Reykjavík, á Melarokki, kom fram á fyrstu Músiktilraunum 1982 og komst þar í úrslit. Einnig spilaði hún ásamt hljómsveitinni Fjötrum á Litla-Hrauni og í framhaldsskólum víða á höfuðborgarsvæðinu og á Hótel Borg. Reflex spilaði eingöngu frumsamda rokktónlist af framsæknari kantinum en gaf ekki út plötu þó svo hún hafi tekið upp nokkur laga sinna.
Meðlimir Reflex voru:
- Guðmundur Sigmarsson á gítar
- Ólafur Friðrik Ægisson á bassa
- Baldvin Örn Arnarson á trommur
- Heimir Már Pétursson sem söng og samdi texta.