Radarstöðin á Darra

Radarstöðin á Darra var herstöð á Hornströndum sem starfrækt var á vegum breska sjóhersins í seinni heimstyrjöldinni. Stöðin var staðsett við Sæból í Aðalvík og upp á fjallinu Darra.[1][2]

Vorið 1941 komu fjórir breskir hermenn til Aðalvíkur og settu upp strandvörslu. Bygging radarstöðvarinnar hófst svo vorið 1942 þegar Bretar reistu litla ratsjá á svonefndum Hjallhól á Sæbóli í Aðalvík. Ári seinna var hafist handa við að byggja stærri ratsjá upp á fjallinu Darra, rétt innan við Ritaskörð. Í stetuliðinu voru á bilinu 60 til 70 menn, þar af um 20 upp á fjalli. Stöðinni var lokað í stríðslok en víða má þó enn sjá leifar hennar í víkinni og upp á fjalli.[3][4]

Sjá einnig

breyta

Heimildir

breyta
  1. „Þegar bretar gistu í Aðalvík“. Hlynur. 15. febrúar 1987. bls. 18–19. Sótt 30. ágúst 2024 – gegnum Tímarit.is. 
  2. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir (20. apríl 2012). „Ég man Aðalvík“. Fréttatíminn. bls. 16, 18–19. Sótt 20. ágúst 2024 – gegnum Tímarit.is. 
  3. Friðþór Kr. Eydal (26. júlí 1991). „Ratsjárstöðvar í Aðalvík“. Morgunblaðið. bls. 14–15. Sótt 20. ágúst 2024 – gegnum Tímarit.is.
  4. Guðni Einarsson (31. júlí 1993). „Rústir á varðbergi“. Morgunblaðið. bls. 20–21. Sótt 30. ágúst 2024 – gegnum Tímarit.is.