Røros (sveitarfélag)
Røros er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 5.572 íbúar (2022).
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er námubærinn Røros sem er eina þéttbýlið í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið Røros á landamæri að sveitarfélögunum Holtålen og Tydal í norðri, Os og Engerdal í Innlandet fylki í suðri og í austri á sveitarfélagið að Svíþjóð.