Holtålen (sveitarfélag)
Holtålen er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 2.024 íbúar (2022).
Það eru engin þéttbýli í Holtålen. Ålen er þorp þar sem stjórnsýsla og miðlæg þjónusta sveitarfélagsins er samankomin. Þorpið er staðsett í miðju sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Holtålen á landamæri að sveitarfélögunum Selbu í norðri, Tydal í norðaustri, Midtre Gauldal í vestri og Røros og Os (Innlandet sýsla) í suðri.