Ráðstefna um samband Asíuríkja
Ráðstefna um samband Asíuríkja var haldin í Nýju Delí í mars og apríl árið 1947. Gestgjafi ráðstefnunnar var Jawaharlal Nehru forsætisráðherra Indlands, sem leiddi á þessum tíma bráðabirgðastjórn til að undirbúa sjálfstæði Indlands, sem var staðfest þann 15. ágúst sama ár. Á ráðstefnunni um samband Asíuríkja komu saman margir leiðtogar asískra sjálfstæðishreyfinga og reynt var í fyrsta sinn að tala fyrir samstöðu Asíuríkja. Markmið ráðstefnunnar var að „sameina forystumenn og -konur Asíu í sameiginlegri stefnu til að rannsaka sameiginleg vandamál íbúa heimsálfunnar, rýna í samfélags-, efnahags- og menningarvandamál hinna ýmsu ríkja Asíu og ýta undir gagnkvæm samskipti og skilning meðal þeirra.“
Í ræðum sínum og ritum hafði Nehru lagt mikla áherslu á hvernig Indland myndi byggja upp sambönd sín við önnur Asíuríki eftir sjálfstæði sitt frá Bretum. Á ráðstefnunni sagði Nehru: „[...] Asía er nú á ný að finna sjálfa sig [...] ein helsta afleiðingin af evrópskum yfirráðum í Asíu hefur verið einangrun á meðal Asíuríkja. [...] Í dag ríður þessi einangrun til falls af ýmsum ástæðum, bæði pólitískum og annars kyns [...] Þessi ráðstefna er mikilvæg tjáning á dýpri vilja huga og anda Asíu sem hefur þraukað [...] Á þessari ráðstefnu og með þessari vinnu eru engir leiðtogar og engir fylgismenn. Öll ríki Asíu verða að koma saman til að inna af hendi sameiginleg verkefni [...]“[1][2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Pt. Jawaharlal Nehru's speech“. Asian Relations Conference 1947. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. febrúar 2012. Sótt 1. október 2019.
- ↑ Sharan, Shankar (ágúst 1997). „Fifty Years After the Asian Relations Conference“ (PDF). Tibetan Parliamentary & Policy Research Centre. Tibetan Parliamentary & Policy Research Centre. bls. 40. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 7. apríl 2014. Sótt 1. október 2019.
Tenglar
breyta- Fréttir og ræður af ráðstefnunni
- Fifty Years Ago: The Asian Relations Conference eftir Claude Arpi
- Fifty Years after the Asian Relations Conference Sharan, 1997, Tibetan Parliamentary and Policy Research Centre