Pylsa
Pylsa (stundum óformlega borið fram og skrifað pulsa)[1] er langur og mjór himnubelgur sem er fylltur af elduðu, söltuðu og/eða reyktu kjötfarsi. Pylsan er oft reidd fram í aflöngu brauði (‚pylsubrauði‘) sem er af svipaðri lengd og pylsan sjálf.[2]
„Pylsa með öllu“,[3] stundum kölluð „þjóðarréttur Íslendinga“,[4][5][6][7][8] er pylsa í brauði með tómatsósu, sinnepi, remúlaði og steiktum og hráum lauk.[9][10][11]
Þann 20. nóvember 2004 var í Kringlunni sett heimsmet „lengsta pylsa í brauði“.[10][12][11] Pylsan var 11,92 metrar.[13] Þetta heimsmet var staðfest í september 2005 af Heimsmetabók Guinness.[14] Reyndar tók þessi staðfesting svo lengi að í millitíma var þetta heimsmet slegið tvisvar – 15. júlí 2005 (15,42 m) og 14. ágúst 2005 (17,5 m).
Tilvísanir
breyta- ↑ Hvort er réttara að segja og rita pylsa eða pulsa?, Guðrún Kvaran, Vísindavefurinn, 23. apríl 2003.
- ↑ Er það pylsa eða pulsa?, Morgunblaðið, 9. maí 2019, bls. 30.
- ↑ Ein með öllu stendur fyrir sínu, Morgunblaðið, 29. júlí 1995, bls. 16.
- ↑ Hádegismatur fyrir 1.000 krónur eða minna, DV, 5. október 2018, bls. 28. („Hún er kölluð þjóðarréttur Íslendinga, blessuð pylsan með öllu, engu eða sumu.“)
- ↑ Pylsan hækkar en kókið ekki, Morgunblaðið, 26. mars 2015, bls. 2. („Þjóðarrétturinn kostar nú 400 krónur [...] Þjóðarréttur Íslendinga, pylsa með öllu, hækkaði um 20 krónur fyrir skömmu [...])
- ↑ Ódýrar pylsur, DV, 20. maí 2008, bls. 14. („Þjóðarréttur Íslendinga, pylsa með öllu, er nokkuð sem fæstir virðast fá nóg af.“)
- ↑ Pylsa með öllu, Fréttir, 6. desember 2001, bls. 4. („Það sem ég ætla að bjóða upp á þessa vikuna er þjóðarréttur Íslendinga, pylsa með öllu, sem allir hafa smakkað út í sjoppu [...]“)
- ↑ Örugg aðferð til þess að vera 100% vinstrisinnaður, Þjóðviljinn, 7. september 1986, bls. 4. („Heit pylsa með öllu er hlutlaus því hún er þjóðarréttur.“)
- ↑ Akureyrska spurningakeppnin, Morgunblaðið, 11. júlí 2019, bls. 41. („Pylsa með öllu er yfirleitt með tómatsósu, sinnepi, remúlaði, steiktum lauk og hráum lauk.“)
- ↑ 10,0 10,1 Heimsmet og ekki miðað við höfðatölu, Morgunblaðið, 22. nóvember 2004, bls. 30. („[...] sem var búið til fyrir heimsmetið. Að íslenskum sið var búin til pylsa með öllu og því voru í brauðinu tólf metra lengjur af tómatsósu, sinnepi, remúlaði, steiktum lauk og hráum.“)
- ↑ 11,0 11,1 Búa til stærstu pylsu í heimi, Fréttablaðið, 17. nóvember 2004, bls. 38. („Pylsan verður tólf metra löng og á hún að setjast í brauð með steiktum og hráum lauk, tómatsósu, sinnepi og remúlaði. Semsagt ein með öllu.“)
- ↑ Heimsins lengsta pylsa í brauði, Morgunblaðið, 20. nóvember 2004, bls. 2.
- ↑ Pylsur og jójó, Morgunblaðið, 9. nóvember 2005, bls. 42.
- ↑ Guinness staðfestir Íslenska pulsan er best og stærst, DV, 24. september 2005, bls. 62.