Panguipullivatn
Panguipullivatn (spænska: Lago Panguipulli) er stöðuvatn í Los Ríos-fylki í Suður-Chile og er eitt af Vötnunum sjö sem svo eru nefnd. Vatnið er 116 ferkílómetrar að stærð og yfirborð þess er í um 130 metra hæð yfir sjávarmáli.
Úr vatninu rennur áin Río Enco suður til Riñihue-vatns. Stærsti bærinn, Panguipulli, er við vestanvert vatnið.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Panguipulli.