PCR
PCR eða pólýmerasa-keðjuhvarf er aðferð sem notuð er til þess að fjölfalda hluta af DNA-streng, til dæmis ákveðin gen.
Það sem þarf til þess að fjölfalda DNA með þessari aðferð er:
- Það DNA sem á að fjölfalda, svokallað sniðmát eða „templat“.
- PCR-vísa, en það eru tvö fákirni (gjarnan um 20 til 30 kirni að lengd) sem basaparast geta við templatstrenginn og marka hvort sinn enda PCR-afurðarinnar.
- Ensímið DNA pólýmerasa. Gjarnan er notaður hitavirkur pólýmerasi, til dæmis úr bakteríunni Thermus aquaticus.
- Óbundin kirni.
- Tölvustýrt hitabað sem hægt er að hita og kæla á víxl.