Olga Guðrún Árnadóttir
Olga Guðrún Árnadóttir (fædd 31. ágúst 1953) er íslenskur rithöfundur. Hún fékk fyrstu verðlaun Samtaka móðurmálskennara 1984 fyrir smásöguna Vertu ekki með svona blá augu[1] og verðlaun fræðsluráðs fyrir söguna Pétur. Þá hlaut hún viðurkenningu Íslandsdeildar IBBY fyrir ritstörf árið 1996. Fyrsta barnabók Olgu Guðrúnar, Trilla, álfarnir og dvergurinn Túllli, kom út árið 1972 en sú næsta, Búrið, kom út 1977 og hefur verið kölluð fyrsta íslenska unglingabókin. Aðrar bækur hennar eru Vegurinn heim (1982), Ævintýri á jólanótt (1992) og Peð á plánetunni Jörð (1995). Auk þess hefur Olga þýtt fjölda bóka, samið tónlist og sungið lög annarra. Plata hennar Babbiddíbú kom út árið 1994.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Vertu ekki með svona blá augu”, Þjóðviljinn, 183. tölublað (17.08.1983), Blaðsíða 16