Notandi:Sigmarkarl/sandbox
Founder(s) | Former partner institutions of EuroFIR NoE |
---|---|
Type | Non-profit |
Headquarters | Brussels, Belgium |
Key people | [Paul Finglas] (President) [Heikki Pakkala] (Vice-president) [Prof Maria Glibetic, Prof Barbara Korousic Seljak, Dr Anna Karin Lindroos, Heikki Pakkala and Dr Aida Turrini ] (Executive directors) |
Area served | Worldwide |
Product(s) | Food Information |
Method | Research, service provision, consultancy |
Employees | 4 |
Members | 80 |
Website | eurofir |
EuroFIR (European Food Information Resource) er alþjóðleg sjálfseignarstofnun sem styður við notkun á upplýsingum um efnainnihald matvæla og öðrum gögnum með samstarfi og samræmingu þeirra [1], functionality and global standards.
Markmið stofnunarinnar er þróun, umsýsla, útgáfa og hagnýting gagna um efnainnihald matvæla, og kynning á alþjóðlegu samstarfi og samræmingu með því að bæta gæði gagna og staðla ásamt því að auka leitarmöguleika í gagnagrunnum.
Saga
breytaEvrópska netverkefnið um gögn um efnainnihald matvæla (2005-10; EuroFIR [2]) var öndvegisverkefni Network of Excellence (NoE) með þátttöku 48 aðila frá háskólum, rannsóknastofnunum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum (SMEs) í 27 löndum. Verkefnið var fjármagnað af 6. Rammaáætlun Evrópusambandsins (Priority 5: Food Quality and Safety; Contract no FP6-513944).
Eitt af meginmarkmiðunum var að þróa, í fyrsta skipti í Evrópu, opinn aðgang að
gögnum um efnainnihald matvæla á Netinu. [3]
Annar mikilvægur afrakstur EuroFIR öndvegisnetsins var að koma á laggirnar sjálfbæru starfi til framtíðar þannig að hægt væri að halda áfram vinnu við suma þá verkþætti sem unnið var að innan verkefnisins. Þessu var náð fram með stofnun sjálfseignarstofnunarinnar EuroFIR AISBL [4].
Aðilar að stofnuninni eru 42 af þeim 48 aðilum sem tóku upphaflega þátt í EuroFIR öndvegisnetinu. Aðalmarkmið stofnunarinnar er að styðja og efla þróun, umsýslu, útgáfu og hagnýtingu gagna um efnainnihald matvæla með alþjóðlegu samstarfi og samræmingu.
Félagar
breytaFélagar með fulla aðild
breyta(*) Félagar sem reka gagnagrunna food composition database á landsgrundvelli.
Institution | Acronym | Country |
---|---|---|
Agricultural University of Athens | AUA | Greece |
British Nutrition Foundation | BNF | United Kingdom |
ETH Zurich | ETHZ | Switzerland |
Food Research Institute | FRI * | Slovakia |
FoodCon | FCN | Belgium |
French Agency for Food, Environmental and Occupational Health and Safety | ANSES * | France |
Hellenic Health Foundation | HHF * | Greece |
Institute of Food Research | IFR * | United Kingdom |
Institute of Medical Research, University of Belgrade | IMR * | Serbia |
Institute of Public Health and the Environment | RIVM * | Netherlands |
Instituto Nacional de Saúde Dr. Ricardo Jorge | INSA * | Portugal |
Istituto Nazionale di Ricerca per gli Alimenti e la Nutrizione | INRAN * | Italy |
Ricerca dell'Istituto Europeo di Oncologica | IEO * | Italy |
National Food & Nutrition Institute | NFNI | Poland |
National Institute for Health and Welfare | THL * | Finland |
Nutrienten Belgie vzw | NUBEL * | Belgium |
National Food Administration | NFA * | Sweden |
Swedish University of Agricultural Sciences | SLU | Sweden |
The National Food Institute at the Technical University of Denmark | DTU * | Denmark |
The Norwegian Food Safety Authority | NFSA | Norway |
Tubitak Marmara Research Centre | TUBITAK * | Turkey |
University College Cork | UCC * | Ireland |
University of Helsinki | UHEL | Finland |
University of Leeds | UL | United Kingdom |
Wageningen University | WU | Netherlands |
Aukafélagar
breyta(*) Félagar sem reka gagnagrunna á landsgrundvelli.
Institution | Acronym | Country |
---|---|---|
Food Centre of Food and Veterinary Service of Latvia | FCF-VS * | Latvia |
Food Standards Australia New Zealand | FSANZ * | Australia |
Gent University | UGENT | Belgium |
Government of Canada | Canada | |
Institute of Agricultural Economics and Information | IAEI | Czech Republic |
Josep Stefan Institute | JSI* | Slovenia |
Matis - Icelandic Food and Biotech R&D | MATIS * | Iceland |
Max Rubner Institute | MRI * | Germany |
University of Granada | UGR * | Spain |
University of Vienna | UVI | Austria |
Venjulegir félagar
breytaInstitution | Acronym | Country |
---|---|---|
Creme Global | Ireland | |
Culmarex S.A. | Spain | |
Czech Agriculture and Food Inspection Authority | Czech Republic | |
Herbalife Europe Limited | United Kingdom | |
Ian D. Unwin Food Information Consultancy | IDUFIC | United Kingdom |
Imperial College London | United Kingdom | |
Pamida International, Ltd. | Slovakia | |
Polytec | Polytec | Denmark |
Procter & Gamble | United Kingdom | |
REPLY Santer | REPLY | Italy |
Topshare International BV | Belgium | |
Treviso Tecnologia - Azienda Speciale per l'Innovazione della Camera Di Commercio Di Treviso | TVT | Italy |
Uzhhorod National University Medical Faculty | The Ukraine | |
Universidad Complutense De Madrid | Spain | |
Universita Del Salento | Italy | |
University of Ljubljana | UoL | Slovenia |
University of Minho | Portugal | |
University of Otago | New Zealand | |
Universidad Politecnica de Cartagena | UPCT | Spain |
University St. Kliment Ohridski – Bitola | Macedonia | |
University of Vigo | UoV | Spain |
University of Wollogong | Australia | |
University of Wolverhampton | UoW | United Kingdom |
Verein zur Förderung des Technologietransfers an der Hochschule Bremerhaven e.V. | TTZ | Germany |
VitalinQ Lifestyle Support BV | The Netherlands | |
Vivsan Salud Sociedad Limitada | Spain |
Heiðursfélagar
breytaInstitution | Acronym | Country |
---|---|---|
Danish Food Information | DFI * | Denmark |
Listi yfir EuroFIR AISBL lykileinstaklinga, félaga og samstarfsaðila á vefsíðu EuroFIR.[5]
Mikilvægi og nytsemi gagna um matvæli
breytaNæringarefnatöflur eða gagnagrunnar um efnainnihald matvæla (FCDBs)[6] veita upplýsingar um næringarefni í matvælum, venjulega frá tilteknu landi. Upphaflega voru þessar upplýsingar aðeins fáanlegar á prentuðu formi og má rekja fyrstu töflurnar aftur til fyrstu ára 19. aldar. Nú á tímum má merkja þróun í átt að rafrænum gagnagrunnum um efnainnihald matvæla. Þeir geta innihaldið mikið af gögnum og getur aðgangur verið auðveldur og vinna við gögnin möguleg með einföldum hætti. Á seinustu árum hafa margir evrópskir gagnagrunnar um efnainnihald matvæla verið gerðir aðgengilegir á netinu og hefur þessi þróun verið studd af EuroFIR innan Evrópu. Gagnagrunnar um efnainnihald matvæla innihalda venjulega upplýsingar um fjölmarga þætti, svo sem: orku, meginefni (t.d. prótein, kolvetni, fitu) og undirflokka (t.d. sykrur, sterkju, fitusýrur), steinefni (t.d. kalk, járn, natríum) og vítamín. Að auki birta sumir gagnagrunnar gildi fyrir einstakar amínósýrur og/eða vítamínþætti (t.d. einstök karótenóíð, svo sem lýkópen og lúteín). Nokkrir sérhæfðir gagnagrunnar eru einnig til; til dæmis er lífvirk efni að finna í EuroFIR eBASIS gagnagrunninum, í bandaríska ísóflavona gagnagrunninum og í franska Phenol-Explorer gagnagrunninum.
Gagnagrunnar um efnainnihald matvæla veita grundvallarupplýsingar fyrir rannsóknir í næringarfræði. Notkun þeirra er þó ekki takmörkuð við næringarfæðina og viðfangsefni tengd lýðheilsu. Nefna má að matvælaiðnaður, löggjafarvaldið og neytendur þurfa og/eða nota gögn um efnainnihald matvæla. ref>Williamson C. (2005) The different uses of food composition databases. Synthesis report No. 2. Retrieved 8. August 2012</ref>
Ein best þekkta notkun gagna um efnainnihald matvæla er við mat á neyslu næringarefna fyrir einstaklinga, svæði, þjóðir og hópa sem eru afmarkaðir alþjóðlega. Næringarráðgjafar og aðrar heilbrigðisstéttir nota gögn um efnainnihald matvæla til að meta fæði sjúklinga sinna, en [faraldursfræðingar]] þurfa að meta fæði til að rannsaka hlutverk efnisþátta í fæðinu og samband heilsu og sjúkdóma. Þessi viðfangsefni geta verið lítil verkefni en einnig alþjóðlegar faraldursfræðilega rannsóknir og sameiginlegar rannsóknir margra aðila.
Opinberar stofnanir rannsaka oft fæði heilla þjóða með landskönnunum á mataræði til að fylgjast með breytingum á næringarástandi og meta áhrif manneldisstefnu. Gögn um efnainnihald matvæla eru einnig mikið notuð við þróun uppskrifta, máltíða og matseðla fyrir sjúkrafæði, mötuneyti og matvælaiðnað. Gögn um efnainnihald matvæla eru mikilvæg við skipulagningu máltíða á elliheimilum, sjúkrahúsum og fangelsum til að ganga úr skugga um að fæðið sé fullnægjandi. Einnig færist í vöxt að veittar séu upplýsingar um næringargildi máltíða á sölustöðum og hefur þetta aukið notkun á gögnum um efnainnihald matvæla í matvælaiðnaði. Eftirspurn eftir næringarupplýsingum hefur verið hvatinn að auknum næringargildismerkingum á umbúðum matvæla. Gögn um efnainnihald matvæla eru notuð þegar unnið er við að skilgreina þörfina fyrir fræðslu um næringu og heilsueflingu og þegar lagt er á ráðin um aðgerðir. Þau eru mikilvægur hluti af kennsluefni um matvæli og næringu í skólum og í vaxandi mæli á vinnustöðum. Þau eru einnig hagnýtt með almennum hætti í landbúnaði og viðskiptum. Til dæmis er hægt að nota gögn um efnainnihald matvæla til að fylgjast með næringargildi, öryggi og því hvort um vörusvik geti verið að ræða.
Hægt er að meta breytingar á innihaldi matvæla með gögnum um efnainnihald, svo sem
breytingar vegna kynbóta og nýrra aðferða við ræktun, uppskeru og varðveislu.
Loks eru gögnin mikilvæg viðmiðun þegar bera þarf saman matvörur og gögn koma fram um líffræðilegan fjölbreytileika.
Þróun upplýsingatækni hefur gert mögulegt að flytja mikið gagnamagn. Það hvetur til þróunar og notkunar á gögnum um efnainnihald matvæla eftir ýmsum leiðum sem henta ólíkum þjóðfélagshópum, aldri og þörfum. Nú er hægt að afla gagna um matvæli hvar og hvenær sem er (heima eða í verslunum) þegar þörf krefur með því að nota litlar fartölvur, síma eða önnur tæki sem eru tengd netinu. Mikilvægt er að tryggja að upplýsingarnar komi frá áreiðanlegum, nákvæmum og opinberum aðilum eins og EuroFIR.
Þátttaka í rannsókna- og þróunarverkefnum
breytaEuroFIR er þátttakandi í nokkrum rannsókna- og þróunarverkefnum sem Evrópusambandið styrkir og hófust á árunum 2010 til 2012. [7]. Þessi verkefni fjalla um áhættu- og ávinningsgreiningu á fæðubótarefnum með lífvirkum efnum sem eru ekki næringarefni, upplýsingar um matvæli og rekjanleika við framleiðslu matvæla, framfarir í næringu Evrópubúa með styrkingu á faglegum vinnubrögðum við næringarráðgjöf, þróun á samsetningu matvæla í þeim tilgangi að draga úr vægi vissra efnisþátta og rannsóknir á heildarneyslu aðskotaefna.
- EuroFIR NEXUS
- PlantLIBRA (PLANT food supplements: Levels of Intake, Benefit and Risk Assessment)
- RFID-F2F (RFID From Farm to Fork)
- DIETS2 (Thematics Network of Dietetics)
- PLEASURE (novel processing approaches for the development of food products low in fat, salt and sugar reduced)
- TDS-Exposure (Total Diet Study Exposure)
Heimildir
breyta- ↑ Quality and standards on food composition databases Sótt 8. ágúst 2012
- ↑ EuroFIR Network of Excellence Sótt 8. ágúst 2012
- ↑ Church S. (2009) Food composition explained. EuroFIR Synthesis report No. 7. Nutrition Bulletin, 34, 250-272. Sótt 8. ágúst 2012
- ↑ History of EuroFIR Sótt 8. ágúst 2012
- ↑ EuroFIR AISBL people Sótt 8. ágúst 2012
- ↑ Food composition databases Sótt 8. ágúst 2012
- ↑ EC projects where EuroFIR AISBL is a partner Retrieved 8. August 2012
External links
breytaCategory:Food-related organizations Category:Food technology organizations Category:Malnutrition organizations Category:Non-profit organisations based in Belgium
- INFOODS – International Network of Food Data Systems
- Codex Alimentarius – Set up by FAO and WHO to develop food standards, guidelines and related texts such
as codes of practice under the Joint FAO/WHO Food Standards Programme.