Norðeyjagöngin
neðansjávargöng í Færeyjum
Norðeyjagöngin (færeyska: Norðoyatunnilin) eru neðansjávargöng um 6300 metra löng og ná 150 metra undir sjávarmáli. Göngin tengja saman Klakksvík á Borðey og Leirvík á Austurey, og þar með Norðeyjar við Austurey og óbeint við Straumey og Voga. Norðeyjagöngin voru opnuð þann 29. apríl 2006. Þau voru lengstu göng Færeyja þar til Austureyjargöngin voru opnuð árið 2020.