Miðnesheiði
- Fyrir kvikmyndina, sjá Miðnesheiði (kvikmynd).
Miðnesheiði er heiði á Reykjanesskaga. Árið 1951 gerðu Íslendingar verndarsamning við Bandaríkin sem fól í sér aðsetu bandaríska hersins á Íslandi. Á Miðnesheiði við Keflavík reis Keflavíkurstöðin, um 5000 manna byggð þar sem flestir hermennirnir komu sér fyrir, eins konar bandarískt þorp á Íslandi.