Hvítönd
(Endurbeint frá Mergus albellus)
Hvítönd (fræðiheiti: Mergellus albellus) er fugl af andaætt. Hvítönd er sjaldgæfur flækingsfugl á Íslandi. Hvítönd er ein af minnstu fiskiöndunum en tvær fiskiendur gulönd og toppönd eru verpa á Íslandi. Hvítönd og kambönd svipar mjög til húsanda.
Hvítönd | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Steggur (ofar) og kolla hvítandar
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Mergellus albellus (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Mergus albellus |
Útlit
breytaHvítandarsteggir í fullum skrúða þekkjast vel á litnum. Þeir eru snjóhvítir með stuttan hvítan topp og nokkra svarta bletti og rákir. Svartur blettur er í andliti frá auga til nefs, og svört rák er aftan auga aftur á hnakka. Á baki og bringuhliðum eru einnig svartar rákir. Stélið er dökkt. Fíngerðar gráar þverrákir eru á síðum. Kvenfuglar og ungfuglar eru með hvíta kverk og kinnum sem skera sig frá rauðbrúnum lit á ofanverðu höfði.
Heimild
breyta- Hvítendur (Mergus albellus) heimsækja Ísland, Náttúrufræðingurinn, 1.-2. Tölublað (01.12.1976), Blaðsíða 27[óvirkur tengill]
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Hvítönd.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist hvítönd.
Wikilífverur eru með efni sem tengist hvítönd.