Medway
Medway er bæjarþyrping í Kent-sýslu í Suðaustur-Englandi. Hún samanstendur af fimm stórum bæjum (Strood, Rochester, Chatham, Gillingham og Rainham) og nokkrum minni þorpum. Þar búa 280.000 manns (2019).
Nafn
breytaMedway heitir eftir Medway-á sem rennur í gegnum byggðina.
Saga
breytaRómverjar reistu bæinn Rochester og byggðu þar brú.
Á tímum Saxa var myntslátta sett upp í Rochester.
Árið 885 sigldu víkingarnir upp Medway-á og settust um Rochester.
Í Rochester stendur normönnsk dómkirkja og normannskur kastali.
Árið 1215 settist konungurinn Jóhann landlausi um Rochester-kastala til þess að ná honum aftur frá uppreisnarher.
Svæðið var mikilvægur staður fyrir pílagríma á leið sinni frá Winchester til Kantaraborgar og líka fyrir musterisriddararna.
Á 16. öld var stór slippur reistur í Chatham og Gillingham og voru mörg fræg skip smíðuð þar, meðal annars HMS Victory sem Nelson stýrði í orrustunni við Trafalgar.
Árið 1667 sigldu Hollendingar upp Medway-á og eyðilögðu mörg skip.
Slippinum var lokað 1984 en hluti hans er nú ferðamannastaður.
Menning
breytaRithöfundurinn Charles Dickens bjó í Medway og margir staðir eru nefndir í bókunum hans. Árlega er haldin hátíð í Rochester sem heitir Dickens Festival.
Helsta fótboltaliðið í Medway er Gillingham FC.
Bíómyndin Ironclad fjallar um umsátrið um Rochester-kastala.