Meðgönguljóð
Meðgönguljóð er ljóðabókasería gefin út af forlaginu Partusi.
Saga
breytaBókaflokkurinn Meðgönguljóð var stofnaður af Kára Tulinius, Sveinbjörgu Bjarnadóttur og Valgerði Þóroddsdóttur árið 2011 og upprunalega gefin út undir merkjum forlagsins Stellu.[1] Árið 2013, eftir þrjár bækur, skildu Meðgönguljóð formlega við Stellu og störfuðu um tíð sem sjálfstætt forlag í umsjón Valgerðar Þóroddsdóttur og Kára Tulinius.[2]
Í byrjun árs 2015 var tilkynnt að serían Meðgönguljóð yrði gefin út undir merkjum forlagsins Partusar, sem hafði þá verið stofnað af Valgerði Þóroddsdóttur[3]. Kári Tulinius og Kristín Svava Tómasdóttir hafa sinnt yfirritstjórn seríunnar frá árinu 2015, en árið 2016 bættist Þórður Sævar Jónsson við í hóp yfirritstjóra.
Útgáfa
breytaNafn bókaflokksins er sagt koma úr kaffiheiminum, þar sem „take away cup“ er þýtt sem „meðgöngubolli“.[4]
Frá árinu 2012 hafa komið út 21 bækur í seríunni.
Höfundur | Bók | Ritstjóri | Ár |
---|---|---|---|
Kári Tulinius / Valgerður Þóroddsdóttir | Þungir forsetar | 2012 | |
Ásta Fanney Sigurðardóttir | Herra Hjúkket | Valgerður Þóroddsdóttir | 2012 |
Arngunnur Árnadóttir | Unglingar | Kári Tulinius | 2013 |
Bergrún Anna Hallsteinsdóttir | Stofumyrkur | Valgerður Þóroddsdóttir | 2013 |
Björk Þorgrímsdóttir | Neindarkennd | Kári Tulinius | 2014 |
Emil Hjörvar Petersen | Ætar kökuskreytingar | Kristín Svava Tómasdóttir | 2014 |
Bergþóra Einarsdóttir | Sjósuða | Arngunnur Árnadóttir | 2014 |
Kristófer Páll Viðarsson | Feigðarórar | Hannes Óli Ágústsson | 2014 |
Krista Alexandersdóttir | Að eilífu, áheyrandi | Hermann Stefánsson | 2015 |
Þórður Sævar Jónsson | Blágil | Kári Tulinius | 2015 |
Soffía Bjarnadóttir | Beinhvít skurn | Anton Helgi Jónsson | 2015 |
Kári Tulinius | Brot hætt frum eind | Anton Helgi Jónsson | 2015 |
Valgerður Þóroddsdóttir | Það sem áður var skógur | Sjón | 2015 |
Elías Knörr | Greitt í liljum | Kári Tulinius | 2016 |
Sigurbjörg Friðriksdóttir | Gáttatif | Jón Kalman Stefánsson | 2016 |
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason | Draumar á þvottasnúru | Haukur Ingvarsson | 2016 |
Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir | Skýjafar | Sigurlín Bjarney Gísladóttir | 2016 |
Bergur Ebbi Benediktsson | Vertu heima á þriðjudag | Halldóra K. Thoroddsen | 2016 |
Elín Edda Þorsteinsdóttir | Hamingjan leit við og beit mig | Linda Vilhjálmsdóttir | 2016 |
Elfur Sunna Baldursdóttir | Gárur | Kristín Ómarsdóttir | 2017 |
Solveig Thoroddsen | Bleikrými | Kristín Svava Tómasdóttir | 2017 |
Samstarf
breytaÍ október 2013 gáfu Meðgönguljóð út kvæðasafnið Ljóð í leiðinni: Skáld um Reykjavík í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.[5] Bókin var í brennidepli á Lestrarhátíð í Reykjavík 2013 og inniheldur 27 ljóð um Reykjavík eftir jafnmörg borgarskáld.[6] [7] Í júlí 2014 stóðu Meðgönguljóð fyrir ljóðahátíðinni Konur á ystu nöf í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands og gáfu út samnefnt safnrit með ljóðum eftir öll skáldin sem fram komu á hátíðinni, bæði á frummáli og í íslenskri þýðingu. [8][9][10]
Umfjöllun
breyta- Arngunnur Árnadóttir í viðtali við Víðsjá Geymt 23 september 2013 í Wayback Machine (Rás 1)
- Bergrún Anna Hallsteinsdóttir í viðtali (Fréttablaðið)
- Bergrún Anna Hallsteinsdóttir í viðtali við Orð*um bækur[óvirkur tengill] (Rás 1)
- Bergþóra Einarsdóttir í viðtali við Orð*um bækur (Rás 1)
- Björk Þorgrímsdóttir í viðtali við Orð*um bækur Geymt 7 mars 2014 í Wayback Machine (Rás 1)
- Björk Þorgrímsdóttir í viðtali (Fréttablaðið)
- Ingi Björn Guðnason bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um þrjár bækur í seríu Meðgönguljóða Geymt 23 september 2013 í Wayback Machine
- Valgerður Þóroddsdóttir í viðtali (Fréttablaðið)
Tilvísanir
breyta- ↑ Halla Þórlaug Óskarsdóttir. „Meðgönguljóð fæðast“, Fréttablaðið.
- ↑ Jórunn Sigurðardóttir. „Neindarkennd, ný ljóðabók“, Orð um bækur.
- ↑ Jórunn Sigurðardóttir. „Jaðarforlag vex úr grasi“, Orð um bækur.
- ↑ http://bokmenntaborgin.is/vidburdir/4196/[óvirkur tengill]
- ↑ Björg Magnúsdóttir. „Ljóð eru nauðsynleg í samfélaginu“, RÚV fréttir.
- ↑ Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. „Setning Lestrarhátíðar í Bókmenntaborg“.
- ↑ „Ljóðin taka af stað frá Hlemmi“, mbl.is.
- ↑ Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og Valgerður Þóroddsdóttir í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2
- ↑ http://www.medgonguljod.com/baekur/konur-a-ystu-nof/[óvirkur tengill]
- ↑ http://www.dv.is/menning/2015/1/8/menningararid-2014-jorunn-sigurdardottir/[óvirkur tengill]