Malaga
Malaga er hafnarborg í Andalúsíu á Suður-Spáni. Íbúar borgarinnar voru rúm 569.000 árið 2015 en um helmingi fleiri búa á stórborgarsvæðinu. Malaga er sjötta stærsta borg Spánar.
Líklegast er talið að heitið sé komið úr fönikísku (og hét þá Malaka) og dregið af salti sbr. hebreska מלח (melak) + arabíska ملح (milh).