Múlakvísl er jökulá á Suðurlandi með upptök í Mýrdalsjökli.

Múlakvísl með Hjörleifshöfða og Atlandshaf í bagrunni

Áin var brúuð við Selfjall eftir Kötlugosið 1918, en brúna tók af í hlaupi 1955. Vegurinn var þá fluttur suður fyrir Höfðabrekkuhamra og ný brú reist austan við Kaplagarða.

Betur er fylgst með vatnsmagni í ánni en flestum öðrum ám sökum þess hve góða vísbendingu það þykir gefa um eldgos í Kötlu.

Brú yfir ánna var opnuð í september 1935. Jökulhlaup hafa eyðilagt brýr yfir ána árin 1955 og 2011.