Mótmælandi Íslands (kvikmynd)
Mótmælandi Íslands er íslensk heimildarmynd í leikstjórn Þóru Fjeldsted og Jón Karls Helgasonar. Myndir segir frá Helga Hóseassyni sem er virkur mótmælandi varðandi allskyns málefni á Íslandi. Hann hefur stundað sín óvenjulegu mótmæli í áratugi og vanalega með útbúning á skrautlegum skiltum sem hann ráfar svo þögull með á Langholtsvegi. Helgi komst í fréttirnar á áttunda áratug síðustu aldar þegar hann sletti skyri yfir þingmenn er voru á leið inn á Alþingi.
Tenglar
breyta- Kvikmyndarýni á www.kvikmyndir.com Geymt 7 nóvember 2006 í Wayback Machine
- Mótmælandi Íslands (kvikmynd) á Internet Movie Database
Þessi kvikmyndagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.