Lyfjagras
Lyfjagras (fræðiheiti: Pinguicula vulgaris[2]) er lítil jurt af blöðrujurtarætt. Jurtin er skordýraæta sem veiðir lítil skordýr með klístri sem þekur jarðlæg blöð hennar. Eitt blátt trektlaga blóm vex á 3-16sm löngum stöngli. Lyfjagras er algengt um alla Evrópu og á Norðurslóðum og vex þá yfirleitt í votlendi og lyngmóum. Á Íslandi er lyfjagras algengt um allt land.
Lyfjagras | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Pinguicula vulgaris L. (1753)[1] |
Lyfjagras hefur einnig verið kallað hleypigras vegna þess að hægt er að nota blöðin sem hleypi. Í Hollandi er lyfjagras friðað.
Tilvísanir
breyta- ↑ L. (1753) , In: Sp. Pl.: 17
- ↑ Roskov Y., Kunze T., Orrell T., Abucay L., Paglinawan L., Culham A., Bailly N., Kirk P., Bourgoin T., Baillargeon G., Decock W., De Wever A., Didžiulis V. (ed) (2019). „Species 2000 & ITIS Catalogue of Life: 2019 Annual Checklist“. Species 2000: Naturalis, Leiden, the Netherlands. ISSN 2405-884X. TaxonID: 53590073. Sótt 12. mars 2023.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist lyfjagrasi.
Wikilífverur eru með efni sem tengist lyfjagrasi.