Levanger (sveitarfélag)
Levanger er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 20.171 íbúar (2022).
Stjórnsýslumiðstöð sveitarfélagsins er borgin Levanger. Til sveitarfélagsins teljast einnig þéttbýlin Skogn, Åsen og Ekne.
Sveitarfélagið Levanger á landamæri að sveitarfélögunum Frosta í vestri, Inderøy í norðri, Verdal í austri og Stjørdal í suðri.