Frosta (sveitarfélag)
Frosta er sveitarfélag í Þrændalögum í Noregi. Í sveitarfélaginu eru 2.608 íbúar (2022).
Engin þéttbýli eru í sveitarfélaginu, en sveitarstjórnin og aðalhlutverk sveitarfélagsins eru miðsvæðis á miðjum Frostaskaga, í kringum þorpið Alstad.
Frosta sveitarfélagið liggur að sveitarfélaginu Levanger í austri.
Við vesturodda Frostu er eyjan Tötra í Þrándheimsfirði, milli Frostu og Leksvik. Norðarlega á eynni eru rústirnar af Tötru-klaustri, sem stofnað var 1207. Sunnar á eynni var árið 1999 ákveðið að stofna nunnuklaustur. Hornsteinninn var lagður árið 2003, og klaustrið tekið í notkun sumarið 2006.
- Frosta í tölum
- Flatarmál: 75 km²
- Ræktað land: 23 km²
- Nytjaskógar: 31 km²
- Mannfjöldi: 2.466 (1. janúar 2008)
- Hæsti staður: Storheia, 368 m y.s.
- Skipting atvinnugreina (1980)
- Landbúnaður, skógrækt, fiskveiðar: 45 %
- Iðnaður: 9 %
- Byggingariðnaður: 7 %
- Verslun: 9 %
- Samgöngur: 6 %
- Aðrar þjónustugreinar: 24 %
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
breyta- Vefsíða sveitarfélagsins
- Heimasíða nunnuklaustursins á Tötru