Leikskólakennari
Leikskólakennari er starfsheiti þeirra sem lokið hafa háskólanámi í leikskólakennarafræðum. Leikskólakennarar hafa réttindi til að starfa við kennslu leikskólabarna og stjórnun leikskóla.
Leikskólakennarafræði eru kennd í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri og tekur námið fimm ár.[1]
Starfsheitið leikskólakennari varð til árið 1993 en fram að því var notast við orðið fóstra. Árið 1993 fór fram atkvæðagreiðsla á vegum Fóstrufélags Íslands þar sem fóstrur kusu á milli starfsheitana fóstra eða leikskólakennari og valdi mikill meirihluti starfsheitið leikskólakennari. Þann 7. maí árið 1994 samþykkti Alþingi lög um leikskóla og var þá starfsheitið leikskólakennari notað í stað orðsins fóstra áður. Skömmu síðar breytti Fóstrufélag Íslands um heiti á félaginu og hlaut heitið Félag íslenskra leikskólakennara.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Hi.is, „Viltu verða leikskólakennari?“ (skoðað 2. september 2019)
- ↑ „Á vegum Fóstrufélags Íslands“, Morgunblaðið, 14. maí 1994 (skoðað 2. september 2019)