Langamýri
Langamýri (eða Löngumýri) er bær í Vallhólmi í Skagafirði, á flatlendinu út og austur af Varmahlíð. Þar fæddist Konráð Gíslason málfræðingur árið 1808.
Árið 1944 stofnaði Ingibjörg Jóhannsdóttir frá Löngumýri kvennaskóla, Húsmæðraskólann á Löngumýri, á föðurleifð sinni og tókst henni af miklum dugnaði og harðfylgi að byggja skólann upp og stunduðu mörg hundruð stúlkur þar nám næstu áratugi. Ingibjörg stýrði skólanum sjálf til 1967 en gaf þá þjóðkirkjunni jörðina gegn því að starfsemin héldi þar áfram.
Húsmæðraskóli var á Löngumýri fram á 8. áratug aldarinnar. Þá var hann lagður niður vegna lítillar aðsóknar en í staðinn kom sjálfseignarstofnun[1] á vegum kirkjunnar með ýmiss konar starfsemi.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Langamýri“. Afrit af upprunalegu geymt þann 20. maí 2009. Sótt 6. september 2009.
Heimildir
breyta- Hallgrímur Jónasson: Árbók Ferðafélags Íslands. Skagafjörður. Ferðafélag Íslands, 1946.
- Hjalti Pálsson (ritstj.): Byggðasaga Skagafjarðar II. bindi. Staðarhreppur - Seyluhreppur. Sögufélag Skagfirðinga, 2001. ISBN 978-9979-861-10-2