Lárus Guðmundsson
Lárus Guðmundsson (fæddur 12. desember 1961) er fyrrverandi knattspyrnumaður frá Íslandi. Hann var atvinnumaður sem spilaði sem framherji erlendis. Hann hefur nú snúið sér að þjálfun og þjálfaði Stjörnuna frá Garðabæ en er nú stjórnarformaður og þjálfari KFG (Knattspyrnufélags Garðabæjar).
Lárus Guðmundsson | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Lárus Guðmundsson | |
Fæðingardagur | 12.12.1961 | |
Fæðingarstaður | Ísland | |
Leikstaða | Framherji | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | KFG Manager | |
Yngriflokkaferill | ||
Vikingur | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
1978-1981 1982-1985 1985-1988 1987-1988 |
Víkingur Waterschei Bayer Uerdingen Kaiserslautern |
62 (17) (0) 7 0 (0) |
Landsliðsferill | ||
1980-1987 | Ísland | 17 (3) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Ferill
breytaFerill með félagsliðum
breytaLárus byrjaði ferilinn hjá Víkingi og náði síðar árangri í Þýsku Bundesligunni með Bayer Uerdingen og 1. FC Kaiserslautern.
Landsliðsferill
breytaHann spilaði fyrst fyrir íslenska landsliðið árið 1980, lék alls 17 landsleiki og skoraði í þeim 3 mörk. Lárus lék sinn fyrsta landsleik 18 ára. Eflaust hefðu landsleikirnir orðið fleiri en 17 ef ekki hefði verið fyrir deilur hans og Tonys Knapp, fyrrverandi landsliðsþjálfara.
Árangur erlendis
breytaLárus Guðmundsson skipar sér í nokkra sérstöðu yfir árangur í bikarkeppnum erlendis og það af fleiri en einni ástæðu.
Lárus er sá eini sem hefur unnið bikarinn í tveimur löndum og sá eini sem hefur byrjað inn á í bikarúrslitaleik og unnið bikarinn í einu af stóru löndunum (Englandi, Ítalíu, Spáni, Frakklandi og Þýskalandi). Lárus er líka aðeins einn af fjórum leikmönnum sem hafa náð að skora tvö mörk í bikarúrslitaleik.
Lárus Guðmundsson varð fyrst bikarmeistari með Waterschei í Belgíu 1982 þegar hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri á Waregem og aðeins þremur árum seinna vann Lárus bikarinn í Vestur-Þýskalandi með liði sínu Bayer Uerdingen sem vann Bayern München 2-1 í úrslitaleik. Lárus lék vel í leiknum og átti þátt í sigurmarkinu en Uerdingen lenti 0-1 undir.
Markahæstur í Evrópukeppni
breytaLárus Guðmundsson lék um árabil sem atvinnumaður í Belgíu og Þýskalandi á 9. áratug síðustu aldar. Lárus var eldfljótur og brögðóttur markahrókur. Hann mætti mótbyr á ferli sínum og þurfti snemma að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Lárus er markahæsti leikmaður Íslands í Evrópukeppni frá upphafi, en hann skoraði tíu mörk í Evrópukeppni með Waterschei og Bayern Uerdingen.
Titlar
breyta- DFB-Pokal: 1985