Kornastærð
Kornastærð er mælikvarði, sem segir til um stærð einstakra setkorna í seti.
Kornastærðarflokkun
breytaStærð setkorna getur verið allt frá örfáum míkrómetrum upp í tugi metra en vegna stærðarbilsins notast flestir kornastærðaskalar við e-s konar lograkvarða. Algengast er að notast við svo kallaðan Udden-Wenworth-skala en í honum er hvert stærðargildi helmingi minna en það næsta á undan í röðinni. Skalinn nær frá < 1/256 mm til > 256 mm og spannar því alls 18 flokka. Þessum flokkum er skipt í fjóra aðalflokka sets, möl, sand, silt og leir. Eðja er stundum notað sameiginlega yfir bæði silt og leir. Annar vinsæll lograkvarði fyrir kornastærð er Krumbein-skali, sem er nokkurs konar útvíkkun á Udden-Wenworth-skalanum og notast við sömu flokka, en gefur kornastærðina upp í φ-gildum. Flokkun á setbergi notast við sömu skala og á hver flokkur sets sér sambærilegt heiti yfir setberg, sem búið er til úr seti af viðkomandi kornastærð.
Yfirlitstafla
breytaφ skali | Þvermál (mm) | Þvermál (µm) | Setkornagerð | Setberg | |
---|---|---|---|---|---|
< -8 | > 256 | > 256.000 | Hnullungar | Möl | Völuberg / Þursaberg |
-7 til -8 | 128 - 256 | 128.000 - 256.000 | Hnullungamöl | ||
-6 til -7 | 64 - 128 | 64.000 - 128.000 | |||
-5 til -6 | 32 - 64 | 32.000 - 64.000 | Mjög gróf | ||
-4 til -5 | 16 - 32 | 16.000 - 32.000 | Gróf | ||
-3 til -4 | 8 - 16 | 8.000 - 16.000 | Meðal | ||
-2 til -3 | 4 - 8 | 4.000 - 8.000 | Fín | ||
-1 til -2 | 2 - 4 | 2.000 - 4.000 | Mjög fín | ||
0 til -1 | 1 - 2 | 1.000 - 2.000 | Mjög grófur | Sandur | Sandsteinn |
1 til 0 | 1/2 - 1 | 500 - 1.000 | Grófur | ||
2 til 1 | 1/4 - 1/2 | 250 - 500 | Meðal | ||
3 til 2 | 1/8 - 1/4 | 125 - 250 | Fínn | ||
4 til 3 | 1/16 - 1/8 | 62,5 - 125 | Mjög fínn | ||
5 til 4 | 1/32 - 1/16 | 31,3 – 62,5 | Gróft | Silt | Siltsteinn |
6 til 5 | 1/64 - 1/32 | 15,6 - 31,3 | Meðal | ||
7 til 6 | 1/128 - 1/64 | 7,8 - 15,6 | Fínt | ||
8 til 7 | 1/256 - 1/128 | 3,9 - 7,8 | Mjög fínt | ||
> 8 | < 1/256 | < 3,9 | Leir | Leirsteinn |
Mikilvægi kornastærðarmælinga
breytaKornastærð getur gefið ýmsar vísbendingar um uppruna sets. Kornastærðardreifing sets, þ.e. hlutfall mismunandi kornastærða í seti, gefur til kynna flutningsaðila setsins þar sem roföflin hafa mismunandi burðargetu. Þannig ber vindur aðallega sand og smærri agnir á meðan vatnsföll geta borið stærri kornastærðir. Jöklar bera hins vegar með sér allar kornastærðir, allt frá leir upp í hnullunga. Auk flutningsmáta getur kornastærð gefið til kynna straumhraða þar sem flutningsgeta eykst í hlutfalli við straumhraða vatns og vinds. Kornastærð getur einnig gefið til kynna þroska sets, þ.e. fjarlægð þess frá upprunastað.