„Brokey“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
m fl
Ekkert breytingarágrip
Lína 2:
'''Brokey''' er stærsta [[eyja]]n í [[Breiðafjörður|Breiðafirði]] og er í mynni [[Hvammsfjörður|Hvammsfjarðar]]; hún er sunnan [[Öxney]]jar og norðan [[Ólafsey]]jar. Stærð hennar er 3,7 km² og hæsti punktur 34 m yfir sjávarmáli. Brokey er um 1 km á breidd og 3,5 - 4,0 km á lengd. Eyjan minnir frekar á fast land, sökum nálægðar við aðrar eyjar. Í Brokey og eyjunum í kring er mikill munur á flóði og fjöru, og getur t.d. verið ófært á bát milli eyjanna vegna þessa. Brokey tengist 5-6 öðrum eyjum á háfjöru þ.á m. Öxney. Stór mýrarflói er á eyjunni og þar er mikið fuglalíf.
 
Í Brokey hefur lengi verið byggð. Meðal frægra íbúa mætti nefna [[Jón Pétursson fálkafangari|Jón Pétursson fálkafangara]] ([[1584]]-[[1667]]), en hann hóf að nýta og hreinsa æðardún og var frumkvöðull á því sviði. Nýungar hans fólust í því sem nefnt hefur verið bökun dúns og hrælun á [[dúngrind]]um. Í Brokey var allmerkileg [[sjávarfallamylla]] sem [[Vigfús Hjaltalín]] reisti. Myllan var staðsett við brú sem tengir Brokey við [[Norðurey]], en núna stendur þó aðeins hús myllunar eftir. Búið var í eyjunni til [[1980]] en þá lagðist heilsársbúskapur af. Brokey erog nýtthinar fjölmörgu eyjar sem henni fylgja eru nýttar af eigendum til æðardún- og Svartbakseggjatöku ([[Svartbakur|Svartbaksegg]]) og þar er fé haft til beitar.
 
{{Stubbur|ísland|landafræði}}