Karlakór Reykjavíkur syngur lög eftir Bjarna Þorsteinsson
Karlakór Reykjavíkur syngur lög eftir Bjarna Þorsteinsson er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1972. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einsöngvarar: Guðrún Tómasdóttir og Sigurður Björnsson. Hljóðritun fór fram í Háteigskirkju í Reykjavík fyrri hluta ársins 1972 undir stjórn Péturs Steingrímssonar. Litmynd á framhlið tók Gunnar Hannesson, en ljósmynd af Karlakór Reykjavíkur á bakhlið tók Kristján Magnússon að afloknum hljómleikum kórsins í Austurbœjarbiói vorið 1972.
Karlakór Reykjavíkur syngur lög eftir Bjarna Þorsteinsson | |
---|---|
SG - 049 | |
Flytjandi | Bjarni Þorsteinsson |
Gefin út | 1972 |
Stefna | Sönglög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Pétur Steingrímsson |
Hljóðdæmi | |
Lagalisti
breyta- Ég vil elska mitt land - Texti: Guðmundur Magnússon
- Vor og haust - Texti: Páll J. Árdal - Útsetning: Páll P. Pálsson. Einsöngur: Sigurður Björnsson
- Vakir vor í bæ - Texti: Hannes Hafstein
- Sólsetursljóð - Texti: Guðmundur Guðmundsson - Útsetning: Páll P. Pálsson.
- Taktu sorg mína - Texti: Guðmundur Guðmundsson - Útsetning: Páll P. Pálsson. Einsöngur: Guðrún Tómasdóttir
- Kirkjuhvoll - Texti: Guðmundur Guðmundsson
- Allir eitt - Texti: Matthías Jochumsson'
- Sveitin mín - Texti: Sigurður Jónsson
- Systkinin - Texti: Einar H. Kvaran - Einsöngur: Sigurður Björnsson
- Heyrið yfir höfin gjalla - Texti: Guðmundur Magnússon
- Burinrótin - Texti: Páll J. Árdal - Einsöngur: Guðrún Tómasdóttir
- Þess bera menn sár - Texti: Hannes Hafstein
- Eitt er landið - Texti: Matthías Jochumsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaÞetta er þriðja hljómplatan í úfgáfuflokki SG-hljómplatna og Karlakórs Reykjavíkur, þar sem eingöngu eru tekin fyrir lög eftir íslenzk tónskáld.
Hérna eru á ferðinni lög eftir Bjarna Þorsteinsson. Það er ekki aðeins að Bjarni hafi hlotið heimsfrœgð fyrir söfnun sína á íslenzkum þjóðlögum, sem hann síðan gaf út. Heldur hefur hann gert mikinn hluta laga, sem enn, mörgum áratugum síðar, eru meðal beztu og kunnustu íslenzkra sönglaga. Nokkur kórlaganna eru hér í upphaflegri útsetningu tónskáldsins, en önnur hefur Páll Pampichler Pálsson útsett fyrir Karlakór Reykjavíkur. Hópur hljómlistarmanna úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir í nokkrum laganna, svo og Guðrún A. Kristinsdóttir, píanóleikari. Einsöngvarar eru í sitt hvorum tveimur lögum, þau Guðrún Tómasdóttir og Sigurður Björnsson. |
||