Karl Filippus Svíaprins
Karl Filippus Svíaprins, hertoginn af Vermalandi (f. 13. maí 1979) er annað barn Karls Gústafs 16. Svíakonungs og Silvíu drottningu. Karl Filippus varð krónprins við fæðingu þar sem lög um ríkiserfðir í Svíþjóð voru með þeim hætti að synir gengu fram yfir dætur, óháð aldri. Það entist þó ekki lengi því að 1. janúar 1980 var lögunum breytt með þeim afleiðingum að eldri systir Karls Filippusar, Viktoría varð krónprinsessa. Frá 2016 hefur Karl Filippus verið fjórði í erfðarröðinni að sænsku krúnunni á eftir systur sinni og tveimur börnum hennar, Estellu og Óskari.
Karl Filippus Svíaprins | |
---|---|
Fæddur | Carl Philip Edmund Bertil 13. maí 1979 |
Maki | Sofia Hellqvist |
Börn | Alexander prins Gabríel prins |
Foreldrar | Karl 16. Gústaf Silvía Svíadrottning |
Þann 13. júní 2015 giftist Karl Filippus fyrrverandi Glamour módelinu Sofíu Hellqvist í konunglegu sænsku kapellunni. Þau eiga tvo syni Alexander (f. 2016) og Gabríel (f. 2017).