Kamtsjatka
1.250 km. langur skagi í austasta hluta Rússneska ríkjasambandsins
(Endurbeint frá Kamchatka)
Kamtsjatka (eða Kamtsjatkaskagi) (rússneska: полуо́стров Камча́тка - poluostrov Kamsjatka) er 1250 kílómetra langur skagi í austur Rússlandi og er 270.000 ferkílómetrar að flatarmáli. Skaginn er á milli Kyrrahafsins til austurs og Okhotskhafsins til vesturs.
Íbúar eru um 322.000. Flestir íbúar búa í Petropavlovsk-Kamtsjatskíj (179,526 íbúar 2010)
Eldfjallið Kljútsjevskaja Sopka er hæsti punkturinn (4.750 m.) en um 30 virk eldfjöll eru á svæðinu.
Heimild
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kamtsjatka.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Kamchatka Peninsula“ á norsku útgáfu Wikipedia. Sótt 31. maí 2018.