Kaldbakur (Eyjafirði)
Kaldbakur er fjall við Eyjafjörð norður af Grenivík og er hluti af fjallakeðju sem einu nafni nefnist Látrafjöll. Fjallið er 1.173 m hátt og hæst fjalla við norðanverðan Eyjafjörð að austan. Á tindi Kaldbaks er varða sem hlaðin var af landmælingamönnum danska herforingjaráðsins árið 1914.
Kaldbakur | |
---|---|
Hæð | 1.167 metri |
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Grýtubakkahreppur |
Hnit | 66°00′19″N 18°10′57″V / 66.0053°N 18.1825°V |
breyta upplýsingum |
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kaldbakur (Eyjafirði).