Kajak- og kanóróður
Kajak- og kanóróður er sú íþrótt að róa kanó eða kajak til að ferðast á vatni, til afþreyingar eða í keppni. Kajak er róið með ár með spöðum á báðum endum, en ár fyrir kanó er aðeins með spaða á öðrum endanum.
Kanóróður hefur verið ólympíugrein frá 1936 og kajakróður frá 1992. Keppt er í tveimur greinum á hvorri tegund: kappróðri og svigi, ýmist einstaklings- eða parakeppni í karla og kvennaflokki.