Jesse James
Jesse James (5. september 1847 – 3. apríl 1882) var frægur bandarískur byssumaður og útlagi í villta vestrinu. Hann var frá Missouri og gerðist skæruliði í her Suðurríkjanna í þrælastríðinu 1864, aðeins sextán ára gamall. Eftir að stríðinu lauk hóf hann feril sem bankaræningi og lestarræningi í Iowa, Texas, Kansas og Vestur-Virginíu með James-Younger-genginu (ásamt bróður sínum, Cole Younger og fleiri fyrrum skæruliðum). Tengsl hans við borgarastyrjöldina og litríkur glæpaferill gerðu hann að alþýðuhetju í lifanda lífi. Hann var skotinn í hnakkann af einum liðsmanni sínum sem ætlaði sér að innheimta 10.000 dollara lausnargjaldið sem sett var til höfuðs honum.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Jesse James.