Jöklasóley
Jöklasóley (fræðiheiti: Ranunculus glacialis) er blóm af sóleyjaætt. Jöklasóley vex víða til fjalla í Evrópu (í Ölpunum, Karpatafjöllum, Pýreneafjöllum og víðar), á Skandinavíuskaga, Íslandi, Færeyjum, Jan Mayen, Svalbarða og austurhluta Grænlands.
Ranunculus glacialis | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Ranunculus glacialis L. |
Jöklasóley velur sér vaxtarstað í grjótskriðum, grýttum melum eða í klettum hátt til fjalla.
Greiningareinkenni
breytaBlöð jöklasóleyjar eru stilklöng og handflipótt eða handskipt. Þau eru hárlaus og gljáandi. Blómin eru hins vegar hvít í fyrstu og verða svo dumbrauð. Þau eru 2-2,5 cm í þvermál.
Tilvísanir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Jöklasóley.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Ranunculus glacialis.