Járnbrautarlest
Járnbrautarlest er farartæki, sem ekur eftir teinum. Samanstendur oftast af eimreið með mismarga járnbrautarvagna í eftirdragi. Flestar járnbrautarlestir eru knúnar áfram með díselvél eða rafmagni, sem kemur úr raflínum við teinana. Fyrstu járnbrautarlestirnar voru gufuknúnar eimreiðar og sú tækni var í notkun fram yfir miðja 20. öld.
Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni. |
Járnbrautarlestir á Íslandi
breytaFyrsta járnbrautarlestin á á Íslandi var eimreið sem gekk milli Öskjuhlíðar og niður á strönd þegar framkvæmdir stóðu yfir við Reykjavíkurhöfn árin 1913 til 1917. Árið 1928 var hætt að nota hana og síðustu teinarnir voru fjarlægðir á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Járnbrautarlest var einnig notuð við gerð Dalvíkurhafnar á árunum 1939 til 1945[1].
Járnbrautarlestir hafa ekki verið notaðar til almenningssamgangna en einstaka sinnum við stórframkvæmdir eins og á Kárahnjúkum þar sem nokkur slys urðu.
Myndir
breytaSjá einnig
breytaTenglar
breyta- ↑ Kristján Sveinsson (2009). Íslenskar hafnir og hafnargerð. Siglingastofunin Íslands.