Ismail Haniyeh
Ismail Haniyeh (f. 1962 eða 1963, d. 31. júlí 2024) var palestínskur stjórnmálamaður sem var hátt settur innan Hamas-samtakanna. Hann var forsætisráðherra Palestínsku heimastjórnarinnar á Gasa frá 2007 til 2014 og leiðtogi Hamas frá 2007 til 2017. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu vék Haniyeh frá völdum forsætisráðherra yfir allri Palestínu í átökum flokkanna Fatah og Hamas árið 2007 sem varð til þess að Haniyeh varð einungis forsætisráðherra yfir Gasa.
Í maí 2024 fór Karim Ahmad Khan, aðalsaksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins, fram á að alþjóðleg handtökuskipun yrði gefin út á hendur Haniyeh ásamt öðrum palestínskum og ísraelskum leiðtogum vegna ætlaðra stríðsglæpa sem framdir hefðu verið í stríði Ísraels og Hamas frá því í október 2023.[1]
Sumarið 2024 var Haniyeh ráðinn af dögum í opinerri heimsókn í Íran.[2] Sprengju var komið fyrir, líklega af ísraelsku leyniþjónustunni Mossad, í vistarverum hans.
Tilvísanir
breyta- ↑ Eiður Þór Árnason (20. maí 2024). „Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða“. Vísir. Sótt 13. ágúst 2024.
- ↑ Hólmfríður Gísladóttir (31. júlí 2024). „Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran“. Vísir. Sótt 31. júlí 2024.